NÝJAR VÖRUR

 

Hægt er að hafa samband í gegnum netfangið : cupid@cupid.is 

Við reynum að svara öllum fyrirspurnum eins fljótt og hægt er á virkum dögum. Fyrirspurnir sem berast seint að kvöldi og um helgar eru yfirfarnar næsta dag. 

Skilmálar

 

 

Shipping and delivery

Sendum vörur á pósthús um allt land gegn sendingarkosnaði. Sá sem pantar þarf að reikna með 2 til 3 virkum dögum frá því að pöntun hefur verið gerð, þar til hún berst.

Safety

Öll viðskipti fara í gegnum SSL (Secure Socket Layer) sem þýðir að allar upplýsingar sem fara í gegnum vefinn eru dulkóðaðar. Þú sérð hvort þú sért inni á öruggusvæði ef lásinn sem kemur neðst í Internet Explorer 4 eða nýrri er lokaður eða lykillinn er óbrotinn í Netscape 4 eða nýrri. Ef þú ert ekki að nota IE eða NN 4 eða nýrri mælum við með því að þú sækir þér uppfærslu. Sértu að nota aðra tegund en IE eða NN þá bendum við þér á að lesa vel hjálpina sem kemur með þeim vafrara.

​Ef þú ert í einhverjum vafa um öryggi þitt við notkun þjónustu cupid.is sendu okkur fyrirspurn á cupid@cupid.is

Terms and conditions

Terms and conditions

Ef vara er ekki til þá er hægt að senda inn fyrirspurn með því að senda okkur tölvupóst Réttur til að falla frá samningi: Þú hefur rétt til
að falla frá þessum samningi innan 14 daga frá
því að þú fékst vöruna afhenta. Frestur til að
skila vörunni til okkar aftur rennur út 14 dögum
eftir þann dag.
Til þess að nýta réttinn þarft þú að tilkynna okkur
ákvörðun þína með ótvíræðri yfirlýsingu t.d.
með bréfi, símbréfi eða tölvupósti á netfangið
cupid@cupid.is
 Til að fresturinn teljist virtur nægir
þér að senda tilkynningu um að þú neytir réttar
þíns til að falla frá samningi áður en fresturinn
rennur út. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd með innleggsnótu eða endurgreiðslu á kreditkort.

Ef þú fellur frá þessum samningi munum við
endurgreiða þér allar greiðslur sem við höfum
fengið frá þér, þ.m.t. afhendingarkostnað (að
undanskildum viðbótarkostnaði ef þú valdir
annan afhendingarmáta en ódýrasta staðlaða
afhendingarmáta sem við bjóðum).
Endurgreiðsla fer fram án ástæðulausrar tafar og
ekki síðar en 14 dögum eftir að okkur berst varan
til baka. Við munum endurgreiða þér með því
að nota sama greiðslumiðil og þú notaðir í upp
haflegu viðskiptunum, nema þú hafir samþykkt
annað sérstaklega.
Þú þarft ekki að bera neinn kostnað af þessari
endurgreiðslu

Vinsamlegast hafið samband við egat ehf. með spurningar.

óski viðskiptavinur að falla frá samning þarf að tilkynna þarf um vöruskil með skýrum hætti. Annað hvort með að senda tölvupóst á cupid@cupid.is eða með því að skila inn samræmdu stöðluðu eyðublaði sem ráðherra gefur út í reglugerð. Eyðublaðið er að finna í viðauka 1 við reglugerð nr. 435/2016.

https://island.is/reglugerdir/nr/0435-2016/d/2021-04-21/diff

eða fylla út meðfylgjandi eyðublað og skila því til cupid@cupid.is

Vöruskil eyðublað hér

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK. Uppgefin verð eru í ISK. Verð sem birtist í vefversluninni er með 24% virðisaukaskatti,

Greiðslumáti

Í vefverslun cupid.is er boðið upp á nokkrar greiðsluleiðir ss pei,netgíro,visa, master ,aur,eða millifærslu

Viðskiptavinir fá senda staðfestingu þegar greiðsla hefur borist og pöntun verður send.

 

Ábyrgð á vöru

2 ára verksmiðjuábyrgð er á endurhlaðanlegum tækjum gegn framvísun kvittunar.  Ef vara reynist gölluð er vörunni skipt út fyrir sömu vöru. Ekki er hægt að skipta vöru í aðra vöru. Tveggja ára ábyrgð er á öllum endurhlaðanlegum tækjum hjá cupid.is

Ábyrgðin nær yfir framleiðslugalla svo sem rof á tengingu við takka eða mótor. 

Ábyrgðin nær ekki yfir rakaskemmdir, höggskemmdir, rafhlöðu eða útlits skemmdir. 

Athugið að ekki má nota silíkon sleipiefni með silíkon vörum. 

Ef silíkon sleipiefni er notað með silíkon vörum dettur varan úr ábyrgð. 

Afslættir og afsláttarkóðar

Ekki eru gefnir afslættir af þeim vörum sem eru nú þegar tilboðs- eða afsláttarvörur. Afslættir og afsláttarkóðar gilda ekki fyrir kaupum á gjafabréfum eða viðburðum.

Varnarþing

Ákvæði og skilmála þessa ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur eða telji einhver að hann eigi kröfu á hendur cupid.is á grundvelli ákvæða og skilmála, verður slíkum ágreiningi eða kröfu vísað til meðferðar hjá íslenskum dómstólum.

Úrskurðaraðili fyrir neytendur

Úrskurðaraðili fyrir neytendur vegna ágreinings um ábyrgð vegna galla geta kaupendur leitað til Neytendastofu eða Kærunefndar vöru- og þjónustukaupa.

Trúnaður

Aðrar upplýsingar 

Netfang: cupid@cupid.is

Símanúmer:8626194

langholtsvegur 168

104 Reykjavik

Kt: 6802131190

VSK Númer 113251

Banka upplýsingar 0161-26-010424

Öryggi

Það er öruggt að versla í vefverslun cupid.is. Greiðslur með greiðslukortum fara í gegnum örugga greiðslusíðu Rapyd. Farið er með öll gögn og upplýsingar sem trúnaðarmál. Gögn og upplýsingar eru ekki afhentar til þriðja aðila

 

Privacy policy

100% trúnaði heitið gagnvart viðskiptavini og vörur sendar í ómerktum umbúðum.

Egat ehf
KT: 680213-1190
Vsknr: 113251

Unaðsvörur fyrir þig

Sendum vörur á pósthús um allt land gegn sendingarkosnað. Sá sem pantar þarf að reikna með 2 til 3 virkum dögum frá því að pöntun hefur verið gerð, þar til hún berst.
Einnig er hægt að sækja vörur að langholtsvegi sé þess óskað.

 

Hér fyrir neðan sérð þú valmöguleika sem þú getur valið úr fyrir sendingu.

 

  • Sækja á lager – vinsamlegast hafið samband fyrir frekari upplýsingar.: kr.0
  • Burðargjaldskrafa – Ábyrgðarpóstur – Sent á næsta pósthús – Greitt við afhendingu samkvæmt verðskrá póstsins: kr.0
  • Burðargjaldskrafa – Ábyrgðarpóstur – Sent heim að dyrum – Greitt við afhendingu samkvæmt verðskrá póstsins.: kr.0

Persónuverndarstefna egat ehf

Við berum virðingu fyrir þér og persónuupplýsingum þínum. Við viljum að þú sért upplýst(ur) um það með einföldum hætti hvernig og af hverju við söfnum, notum, og varðveitum persónuupplýsingar um þig og hvaða réttindi þú hefur gagnvart okkur.
Í persónuverndaryfirlýsingu okkar svörum við eftirfarandi spurningum:

Hvenær og hvers vegna söfnum við upplýsingum um þig?

Hvaða persónuupplýsingum söfnum við um þig?

Hvernig notum við persónuupplýsingarnar þínar?

Með hverjum deilum við persónuupplýsingum þínum?

Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga þinna?

Hver lengi varðveitum við upplýsingarnar?

þín réttindi gagnvart okkur?

Mun þessi persónuverndarstefna breytast?

 Hvenær og hvers vegna söfnum við upplýsingum um þig?

Við söfnum og varðveitum ýmsar persónuupplýsingar um viðskiptavini okkar. Ólíkum persónuupplýsingum kann að vera safnað um þig eftir því hvort þú sért sjálf/ur í viðskiptum við félagið eða hvort þú komir fram fyrir hönd lögaðila í viðskiptum við félagið, t.d. birgja. Þessum upplýsingum söfnum við til þess að við getum veitt þá þjónustu sem óskað hefur verið eftir.

Þegar þú ert í viðskiptum hjá okkur söfnum við og höldum utan um upplýsingar sem tengjast viðskiptasögu þinni hjá okkur. Þessum upplýsingum söfnum við til þess að veita þér yfirsýn yfir viðskipti þín við okkur og til þess að við getum boðið þér persónulegri þjónustu.

Þegar þú vilt vera í tengslum við okkur og fá upplýsingar (s.s. fréttabréf, markpósta og tilboðsbæklinga) frá okkur með reglubundnu millibili ert þú beðinn um að veita okkur nauðsynlegar upplýsingar. Þetta er háð þínu vali.

Stundum býðst þér að veita okkur, með valkvæðum hætti, viðbótarupplýsingar um þig. Þetta eru upplýsingar sem við óskum eftir því við teljum þær geta hjálpað okkur að veita þér betri þjónustu. Þú þarft aldrei að veita slíkar upplýsingar nema þú kjósir það.

Þegar þú notar vefviðmót okkar söfnum við jafnframt persónuupplýsingum með vefkökum (e. cookies), IP-tölum og öðrum upplýsingum tengdum tækinu sem þú notar (s.s. gerð vélbúnaðar, útgáfu stýrikerfis o.þ.h.). Þú getur valið hvort þú kýst að gefa okkur þessar upplýsingar

Þegar þú skilar til okkar notuðu tæki vegna endursölu, eyðingar eða tæki sem þú hefur haft að láni í skamman tíma getur verið að þú hafir skilið eftir í tækinu persónuupplýsingar.
Hvaða persónuupplýsingum söfnum við um þig?

Persónuupplýsingar sem við söfnum um þig velta á því hvaða þjónustu þú hefur óskað eftir eða í hvaða tilgangi þú hefur nálgast okkur, upplýsingar sem við söfnum eru m.a.:

Nafn þitt, kennitala, heimilisfang, símanúmer og tölvupóstfang.

Kreditkortanúmer, debetkortanúmer, reikningsupplýsingar eða aðrar bankatengdar upplýsingar.

Viðskiptasögu þína hjá okkur, þ.á m. hvaða vöru og þjónustu þú hefur keypt hjá okkur.

Samskipti sem þú velur að eiga við okkur, s.s. tölvupóstar, skilaboð send í gegnum vefviðmót, hljóðrituð símtöl, bréf eða önnur samskipti.

Greiðsluupplýsingar/reikningsviðskiptaupplýsingar – s.s. dagsetningar á framkvæmdum eða mótteknum greiðslum.

Upplýsingar um notkun þína á vefsvæðum okkar, Þessar upplýsingar innifela m.a. hvenær þú heimsækir síðuna, hve lengi þú notar hana, ætlaða staðsetningu þína þegar þú notar síðuna, og upplýsingar um tækið sem þú notar til þess að fara inn á síðuna.

 

Póstlistar: Ef viðskiptavinur skráir sig á póstlista egat ehf mun félagið vinna með upplýsingar um netfang viðskiptavina og eftir tilvikun aðrar upplýsingar sem viðskiptavinur lætur fyrirtækinu í té, svo sem nafn, heimilisfang og kyn. Sú vinnsla byggir á samþykki viðskiptavina en þeim er heimilt hvenær sem er að afturkalla samþykkið og afskrá sig af póstlista félagsins.

Viðskiptavinir: egat ehf kann að biðja viðskiptavini sína um kennitölu, netfang, símanúmer, heimilisfang og frekari upplýsingar til þess að vista í viðskiptamannakerfi sínu. Tilgangur vinnslunnar er að geta uppfyllt samning sem viðskiptavinur gerir við fyrirtækið, s.s. að geta afhent vörur sem keyptar eru, hafa samband við viðskiptavini vegna vara sem eru í viðgerð og að viðskiptavinir geti flett upp kaupum sínum í gegnum „mínar síður“. Þannig getur egat ehf haldið utan um ábyrgðarskírteini seldra vara í tölvukerfum sínum og starfsmenn geta, að beiðni viðskiptavina, flett upp keyptum vörum til að svara spurningum og þjónustað viðskiptavini betur.

Notuð tæki: þegar þú afhendir okkur notað tæki til endursölu eða eyðingar, eða tæki sem þú hefur haft að láni til skemmri tíma, getur verið að þú hafir skilið eftir persónuupplýsingar í tækinu. Við notum viðurkenndan hugbúnað til að hreinsa út öll gögn af notuðum tækjum og þar með þær persónuupplýsingar sem kunna að vera til staðar.

Komir þú fram fyrir hönd samstarfsaðila egat ehf, s.s. birgja, verktaka eða viðskiptamann sem er lögaðili, kann egat ehf að vinna með tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn, símanúmer og tölvupóstfang. Þá kann egat ehf að vinna með samskiptasögu og eftir atvikum reikningsupplýsingar. Þessi vinnsla er félaginu nauðsynleg til að geta uppfyllt skyldur sínar á grundvelli samnings við viðkomandi samstarfsaðila. Þá kann félaginu að vera skylt að vinna með upplýsingar á grundvelli lagaskyldu, s.s. bókhaldslaga.

Kvartanir og ábendingar: Ef þú sendir okkur ábendingu eða kvörtun mun egat ehf almennt vinna með tengiliðaupplýsingar þínar, s.s. nafn og netfang, og efni þeirrar kvörtunar eða ábendingar sem þú hefur kosið að koma á framfæri.

 

Upplýsingar sem falla undir bókhaldslög eru varðveittar í 7 ár frá lokum viðkomandi reikningsárs. Vissar upplýsingar kann að vera nauðsynlegt að varðveita lengur, t.d. ef líkur standa til þess að egat ehf komi til með að þurfa að stofna, hafa uppi eða verja réttarkröfur. Í þeim tilfellum verður varðveislutími miðaður við reglur um fyrningarfrest krafna.
Hvernig notum við persónuupplýsingar þínar?

Við kunnum að nota persónuupplýsingar þínar til þess að:

Veita þér þá þjónustu eða vörur sem þú hefur óskað eftir.

Vinna úr beiðnum sem þú hefur komið á framfæri til okkar.

Bjóða þér tiltekna þjónustu á tilteknum kjörum.

Upplýsa þig um nýjar vörur og þjónustur.

Senda þér reikninga vegna viðskipta við okkur eða rukka þig fyrir þjónustu-og/eða vörukaup.

Meta lánshæfi þitt.

Átta okkur á því hvernig þú nýtir þér þjónustu okkar og vörur, þannig getum við betur þróað áfram okkar þjónustu-og vöruúrval.

Svara spurningum sem þú beinir til okkar.

 Með hverjum deilum við persónuupplýsingum þínum?

Við kunnum að deila upplýsingum um þig með eftirfarandi aðilum:

Yfirvöldum, s.s. stjórnvöldum, dómstólum og löggæsluyfirvöldum

Lánshæfisfyrirtækjum og fjármálastofnunum

Innheimtufyrirtækjum

Þjónustufyrirtækjum sem koma fram fyrir okkar hönd.

Sérfræðingum okkar s.s. lögfræðingum, endurskoðendum og ytri ráðgjöfum.

Við deilum upplýsingum einungis með þriðju aðilum skv. vinnslusamningi þar sem kveðið er á um meðferð og öryggi persónuupplýsinga, nema lagaskylda kveði á um annað. Komi upp aðstæður þar sem grunur er um sviksamlega eða ólögmæta háttsemi munum við deila með viðeigandi aðilum persónuupplýsingum sem þýðingu kunna að hafa í þeim tilgangi að vernda hagsmuni okkar, hagsmuni þína og/eða hagsmuni viðskiptavina okkar.
Komi til þess að við sameinumst öðru félagi og/eða erum yfirtekin af öðrum eigendum þá kunna upplýsingarnar að flytjast yfir til nýs félags.
 Hvernig tryggjum við öryggi persónuupplýsinga þinna?

Persónuupplýsingar eru geymdar í viðurkenndum aðgangstýrðum tölvukerfum þar sem passað er upp á að einungis þeir sem þurfa að hafa aðgang að gögnum hafi. egat ehf tryggir að allar almennar varnir tölvukerfa séu til staðar, þær uppfærðar og vaktaðar reglulega.
 Við bendum þér á að þú getur ávallt tryggt öryggi þinna upplýsinga með því að eyða þeim úr tækjum áður en þau eru afhent til okkar.

Hve lengi varðveitum við upplýsingarnar?

Við munum varðveita viðskiptasögu þína í allt að 4 ár nema lög krefjist eða leyfi lengri varðveislutíma. Ef ekki er lengur þörf á upplýsingunum eða lög kveða á um eyðingu þeirra, verða upplýsingarnar gerðar ópersónugreinanlegar og/eða þeim eytt.
 Þín réttindi gagnvart okkur?

Þú hefur rétt á því að fá upplýsingar frá okkur um það hvernig persónuupplýsingar þínar eru nýttar af okkur og hvaða upplýsingar við höfum um þig. Þú hefur einnig rétt á því að uppfæra upplýsingar um þig þannig að þær séu réttar, óska eftir leiðréttingum eða að upplýsingum um þig sé eytt, enda sé ekki lengur ástæða til þess að við geymum þær. Að sama skapi getur þú óskað eftir því að fá upplýsingar um þig afhentar en til þess þarftu að fylla út þetta eyðublað.
Vakni upp spurningar eða athugasemdir í tengslum við persónuverndaryfirlýsingu þessa eða vinnslu okkar, eða ef þú vilt kvarta yfir mögulegu broti á persónuverndarlögum skaltu hafa samband við okkur með því að senda okkur tölvupóst á netfangið personuvernd@elko.is. Við munum leggja allt kapp við að bregðast við svo fljótt sem auðið er.
Þú hefur einnig alltaf rétt á því að beina kvörtun þinni til Persónuverndar í samræmi við gildandi lög um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga, nú lög nr. 90/2018.
Mun þessi persónuverndarstefna breytast?

Persónuverndarstefna þessi kann að breytast með tímanum, t.d. vegna breytinga á lögum og reglum eða opinberum kröfum gagnvart okkur og meðhöndlun persónuupplýsinga. Við hvetjum þig því til þess að fylgjast reglulega með uppfærslum, en þær birtum við á vefsíðu okkar.

 

Félagið getur að auki í einhverjum tilvikum unnið persónuupplýsingar á grundvelli lagaskyldu, s.s. vinnulöggjafar og skattalöggjafar.

Í þeim tilvikum þar sem söfnun og vinnsla persónuupplýsinga byggir á samþykki þínu, er þér ávallt heimilt að afturkalla slíkt samþykki. Öll samskipti í tengslum við slíka afturköllun eða breytingu á innihaldi samþykkis skal beina til mannauðsstjóra.

Félagið skuldbindur sig til þess að öll vinnsla á persónuupplýsingum um umsækjendur sé lögleg, sanngjörn og gagnsæ. Upplýsingum verði aðeins safnað í tilteknum, sérstökum og lögmætum tilgangi og að söfnun og vinnsla gangi ekki lengra en þörf krefur miðað við tilgang vinnslunnar. Vinnsla skal í öllum tilvikum vera nægileg, viðeigandi og takmörkuð við það sem nauðsynlegt er miðað við tilgang vinnslunnar.
Miðlun til þriðju aðila

Félagið kann að miðla persónuupplýsingum um umsækjendur til verktaka og annarra þriðju aðila vegna vinnu þeirra fyrir félagið í tengslum við umsóknarferlið. Einnig gæti persónuupplýsingum verið miðlað til þriðju aðila sem veita okkur upplýsingatækniþjónustu og aðra þjónustu sem tengist vinnslu og er hluti af rekstri félagsins.

Þriðju aðilar sem veita okkur þjónustu samkvæmt framansögðu gætu verið staðsettir utan Íslands. egat ehf mun þó ekki miðla persónuupplýsingum utan Evrópska efnahagssvæðisins nema slíkt sé heimilt á grundvelli viðeigandi persónuverndarlöggjafar.

Persónuupplýsingar um þig kunna verið afhentar til þriðju aðila að því marki sem heimilað er eða krafist er á grundvelli viðeigandi laga eða reglna.
6. Hvernig er öryggi persónuupplýsinga tryggt?

Félagið leitast við að grípa til viðeigandi tæknilegra og skipulegra ráðstafana til að vernda persónuupplýsingar, með sérstöku tilliti til eðlis þeirra. Dæmi um slíkar öryggisráðstafanir eru aðgangsstýringar að kerfum þar sem upplýsingar um þig eru vistaðar. Þessum ráðstöfunum er ætlað að vernda persónuupplýsingar gegn því að þær glatist eða breytist fyrir slysni og gegn óleyfilegum aðgangi, afritun, notkun eða miðlun þeirra.

Fyrirspurnir og kvörtun til Persónuverndar

Ef þú vilt nýta þér þau réttindi sem lýst er  í reglum þessum, eða ef þú hefur einhverjar spurningar vegna persónuverndarreglna þessara eða það hvernig við vinnum með persónuupplýsingar þínar, vinsamlegast hafðu samband við mannauðsstjóra sem mun leitast við að svara fyrirspurnum og leiðbeina þér um réttindi þín samkvæmt persónuverndarreglum þessum.

Ef að þú ert ósátt/ur við vinnslu félagsins á persónuupplýsingum getur þú sent erindi til Persónuverndar (www.personuvernd.is).
10. Samskiptaupplýsingar

Öll samskipti er varða persónuvernd skulu fara fram í gegnum egat@egat.is.
11. Endurskoðun

Félagið getur frá einum tíma til annars breytt persónuverndarstefnu þessari í samræmi við breytingar á viðeigandi lögum eða reglugerðum eða vegna breytinga á því hvernig félagið vinnur með persónuupplýsingar. Verði gerðar breytingar á persónuverndarstefnu þessari verður umsækjendum kynnt ný útgáfa af stefnunni á sannanlegan hátt.

Allar breytingar sem kunna að verða gerðar á stefnunni taka gildi eftir að uppfærð útgáfa hefur verið kynnt.

Þessi persónuverndarstefna var sett þann 27. april 2022.